30.01.07 - 16:13
Magnús Már Einarsson
Ronaldo til AC Milan (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
AC Milan hefur keypt brasilíska framherjann Ronaldo frá Real Madrid fyrir óuppgefna upphæð eftir samningaviðræður sem hafa staðið yfir í tvær vikur.
Talið er að kaupverðið sé á milli sjö og átta milljónir evra en Adriano Galliani varaforseti AC Milan greindi frá því í gær að Real hafi viljað fá átta milljónir evra fyrir leikmanninn.
Ronaldo sem hefur þrívegis verið valinn bestur í heimi hefur gert eins og hálfs árs samning við AC en hann hefur þegar staðiðst læknisskoðun hjá liðinu.
Ronaldo kom til Real Madrid árið 2002 frá Inter á 20 milljónir punda og átti samningur hans við spænska liðið að renna út eftir eitt og hálft ár.
Þessi þrítugi markaskorari sem hefur tvívegis unnið HM með brasilíska landsliðinu hefur einungis verið þrívegis í byrjunarliði hjá Real í La Liga á leiktíðinni og var fljótlega ljóst eftir komu Fabio Capello að leikmaðurinn ætti ekki mikla framtíð í Madrid.
Carlo Ancelotti þjálfari AC Milan hefur látið hafa eftir sér um Ronaldo: ,,"Hann er frábær framherji og enn mjög fljótur. Hann hefur ekki æft mikið en hann er enn magnaður leikmaður sem hefur skorað næstum því hundrað mörk á síðustu fimm árum."

Heimild: BBC