30.01.07 - 16:40
Andri Fannar Stefánsson
Julius Aghahowa til Wigan (Staðfest)

Aghahowa í baráttunni við Nicky Butt í landsleik árið 2002.

Mynd: Getty Images

Wigan Athletic hafa gengið frá kaupum á Julius Aghahowa nígeríska landsliðsmanninum frá Shakhtar Donetsk en honum var veitt atvinnuleyfi í dag. Kaupverðið er óuppgefið en hann mun væntanlega vera góð viðbót við framlínu Wigan í fallbaráttunni.
,,Julius hefur sannað sig sem klassa framherji og það getur enginn efast um getu hans," sagði Paul Jewell í samtali við heimasíðu Wigan. ,,Þegar Henri Camara kemur aftur og með Caleb Folan í liðinu, þá er ég allt í einu kominn með mikla valmöguleika í sóknina."
Wigan eru nú að vonast til þess að geta sannfært Papa Boupa Diop um að koma til liðsins frá Fulham. Diop sem er 29 ára er enn að íhuga fjögurra milljóna punda skipti yfir til Wigan en Jewell segir að allir þessir hlutir taki tíma.
,,Við viljum fá hann, við verðum samt að gefa honum tíma til að hugsa málið og ræða við þá hjá Fulham. Ef hann kemur ekki þá verða það vonbrigði, en þannig er það bara."
Mircea Lucescu þjálfari Shakhtar hafði þetta að segja um söluna á Aghahowa: ,,Hann vill spila í Englandi og við höfum ákveðið að leyfa honum það. Hann hefur verið hjá okkur í sjö ár og það var kominn tími á tilbreytingu."
Framherjinn kom til Shakhtar árið 2000 á um tvær milljónir punda frá Esperance í Túnis.

Heimild: BBC