30.01.07 - 17:39
Magnús Már Einarsson
Runstrom til Luton á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Luton úr ensku fyrstu deildinni hefur fengið sænska framherjann Bjorn Runstrom að láni frá Fulham í einn mánuð.
Runstrom sem kom til Fulham frá Hammarby á 700 þúsund pund síðastliðið sumar hefur einungis komið einu sinni við sögu í ensku úrvalsdeildinni á leiktíðinni en hann lék einnig gegn Wycombe í deildabikarnum.
Eftir komu Vincenzo Montella er ennþá minni möguleiki fyrir Runstrom á að fá tækifæri og því hefur hann ákveðið að fara til Luton á láni og gæti hann komið inn í leikmannahóp liðsins gegn Leicester á laugardag.

Heimild: BBC