30.01.07 - 21:36
Magnús Már Einarsson
Dean Kiely til WBA (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
West Bromwich Albion úr ensku fyrstu deildinni hefur fengið markvörðinn reynda Dean Kiely frá Portsmouth og hefur hann gert eins og hálfs árs samning við félagið.
Kiely sem er 36 ára Íri hefur verið í láni hjá Luton frá því í nóvember en hann missti sæti sitt í liði Portsmouth þegar að Harry Redknapp keypti David James síðastliðið sumar.
Kiely er fenginn til WBA þar sem að Russell Hoult hefur verið settur í leikbann af félaginu eftir að greinar um hans persónulega líf birtust í enskum dagblöðum.
Þegar hann var ungur byrjaði Kiely ferilinn hjá WBA og nú um það bil tuttugu árum síðar er hann kominn aftur til félagsins.

Heimild: BBC