Fotbolti.net
30.01.08 - 16:43
Magnús Már Einarsson

Rangers fær Dailly frá West Ham (Staðfest)

Rangers fær Dailly frá West Ham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Rangers hefur fengið varnarmanninn Christian Dailly frá West Ham og hefur hann gert samning út tímabilið.
Þessi 34 ára gamli leikmaður hefur ekki verið í náðinni hjá West Ham en hann var meðal annars í láni hjá Southampton í tvo mánuði fyrr á þessari leiktíð.

Rangers hefur núna borgað upp samning hans svipað og félagið gerði þegar David Weir kom frá Everton fyrir ári síðan.

Dailly er væntanlega ætlað að fylla skarð Alan Hutton sem fór frá Rangers til Tottenham fyrr í dag.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.