Fotbolti.net
30.01.09 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Robert Kovac til Dinamo Zagreb (Staðfest)

Robert Kovac til Dinamo Zagreb (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Robert Kovac landsliðsmaður Króatíu gekk til liðs við Dinamo Zagreb í gær en hann kemur frá Borussia Dortmund þar sem hann var enn samningsbundinn.
Kovac sem er 34 ára gamall varnarmaður mun spila með Dinamo Zagreb út tímabilið en félagið tilkynnti komu hans í gær.

Ekkert kom fram um kaupverð en Marijan Vlak þjálfari Dinamo sagði hann gífurlegan liðsstyrk.

Þegar Kovac kom fyrst til Þýskalands lék hann með Nuremborg en lék einnig með Bayer Leverkusen og Bayern Munchen áður en hann gekk til liðs við Juventus árið 2005. Hann fór svo til Dortmund í júní 2007.

Heimild: AP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.