Fotbolti.net
30.01.09 - 12:09
Magnús Már Einarsson

Steven Mouyokolo til Hull (Staðfest)

Phil Brown stjóri Hull.

Phil Brown stjóri Hull.

Canon

Mynd: Getty Images

Hull City hefur keypt varnarmanninn Steven Mouyokolo frá franska 2.deildarliðinu Boulogne.
Moyokolo hefur gert fjögurra ára samning við Hull en hann mun hins vegar ekki koma til félagsins fyrr en í sumar.

Boulogne vill ekki missa hinn 22 ára gamla Mouyokolo strax því félagið er í toppbaráttu og á möguleika á að komast upp um deild.

Phil Brown stjóri Hull hefur verið að vinna í því að styrkja leikmannahópinn en í síðustu viku keypti hann Jimmy Bullard miðjumann Fulham á metfé eða fimm milljónir punda.

Þá reyndi Brown að fá John Arne Riise varnarmann Roma en verðmiðinn á honum var hins vegar of hár fyrir Hull.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.