Fotbolti.net
30.01.09 - 16:47
Magnús Már Einarsson

Jens Elvar ráðinn þjálfari hjá Hvöt (Staðfest)

Jens í leik með Hvöt á síðustu leiktíð.

Jens í leik með Hvöt á síðustu leiktíð.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Knattspyrnudeild Hvatar á Blönduósi hefur ráðið Jens Elvar Sævarsson sem spilandi þjálfara hjá meistaraflokki félagsins í 2. deild á komandi keppnistímabili.
Á síðustu leiktíð endaði Hvöt í 4.sæti í annarri deild karla en Páll Einarsson hætti sem þjálfari liðsins eftir tímabilið og nú hefur Jens Elvar verið ráðinn í hans stað.

Jens Elvar, sem er 28 ára varnarmaður, spilaði átta leiki með Hvöt síðastlðiið sumar en hann hefur nú þegar hafið störf sem þjálfari liðsins.

Jens hefur lengst af á sínum ferli spilað með Þrótti en hann hefur einnig leikið með Fylki og Fjarðarbyggð sem og Hvöt.

,,Hvöt hefur einnig verið að ganga frá samningum við leikmenn og er frekari frétta að vænta af því síðar,\" sagði í yfirlýsingu sem félagið sendi frá sér í dag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.