30.01.09 - 16:40
Magnús Már Einarsson
El-Hadji Diouf til Blackburn (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Blackburn hefur keypt El-Hadji Diouf frá Sunderland fyrir óuppgefna upphæð.
Þessi 28 ára gamli framherji hefur skrifað undir tveggja og hálfs árs samning við Blackburn en hjá félaginu hittir hann Sam Allardyce fyrrum stjóra sinn hjá Bolton.
,,Hann getur spilað í nokkrum stöðum, úti hægra megin, úti vinstra megin sem og frammi,\" sagði Allardyce.
,,Á þeim tíma sem ég þjálfaði hann þá vorum við alltaf í efri helming ensku úrvalsdeildarinnar, aldrei neðar en í áttunda sæti og við spiluðum í Evrópukeppni.\"
Diouf er ekki löglegur með Blackburn þegar að liðið mætir Middlesbrough á morgun en hann ætti að geta leikið gegn sínum gömlu félögum í Sunderland í enska bikarnum í næstu viku.

Heimild: BBC