Fotbolti.net
30.01.10 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Danny Fox til Burnley (Staðfest)

Danny Fox til Burnley (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Burnley hefur keypt varnarmanninn Danny Fox frá Celtic fyrir óuppgefna upphæð.
Fox kom til Celtic frá Coventry síðastliðið sumar en hann náði ekki að finna sig í Skotlandi.

Þessi 23 ára gamli leikmaður hefur núna skrifað undir þriggja og hálfs árs samning við Burnley.

Félagaskiptin náðu þó ekki að ganga í gegn í tæka tíð fyrir leik Burnley og Chelsea á morgun og því verður Fox í stúkunni þar.

Fox er fjórði leikmaðurinn sem Brian Laws fær til Burnley í mánuðinum en hann hafði áður krækt í Frederic Nimani, Nicky Weaver og Leon Cort.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.