Fotbolti.net
30.01.10 - 12:26
Magnús Már Einarsson

Hernan Crespo aftur til Parma (Staðfest)

Hernan Crespo aftur til Parma (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Argentínski framherjinn Hernan Crespo hefur gengið til liðs við Parma á nýjan leik en hann kemur til félagsins frá Genoa.
Crespo, sem lék áður með Chelsea og Inter, hefur fengið fá tækifæri hjá Genoa og hoppaði því á tækifærið að fara til Parma.

Crespo sló í gegn hjá Parma frá 1996-2000 og hann var í skýjunum eftir að gengið var frá samningum.

,,Ég mun alltaf styðja Parma og það brjótast fram ótrúlegar tilfinningar þegar að ég kem til baka,\" sagði hinn 34 ára gamli Crespo.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.