Fotbolti.net
30.01.10 - 20:31
Magnús Már Einarsson

Younes Kaboul til Tottenham (Staðfest)

Kaboul er kominn aftur til Tottenham.

Kaboul er kominn aftur til Tottenham.

Canon

Mynd: Getty Images

Tottenham hefur fengið varnarmanninn Younes Kaboul til liðs við sig frá Portsmouth.
Viðræður hafa verið í gangi undanfarna daga og nú er klárt að Kaboul fer aftur til Tottenham.

Kaboul kom upphaflega til Tottenham frá Auxerre sumarið 2007 en fór ári síðar til Portsmouth.

Hjá Portsmouth hefur hann verið einn af betri mönnum á þessu tímabili og því ákvað Harry Redknapp stjóri Spurs að kaupa hann.

Kaboul er annar leikmaðurinn sem Tottenham fær á tveimur dögum en Eiður Smári Guðjohnsen kom formlega til liðsins á láni frá Monaco í gær.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.