30.01.12 - 06:00
Alexander Freyr Tamimi
Jóhann Ragnar Benediktsson í Keflavík (Staðfest)

Jóhann Ragnar í leik með Fjarðabyggð.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhann Ragnar í leik með Fjarðabyggð.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jóhann Ragnar Benediktsson er genginn til liðs við Keflavík frá Fjarðabyggð, en hann hefur leikið fyrir austan undanfarin ár og verið í lykilhlutverki.
Jóhann er 31 árs gamall en hann skrifaði undir tveggja ára samning við Keflvíkinga.
Jóhann er 31 árs gamall en hann skrifaði undir tveggja ára samning við Keflvíkinga.
Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem Jóhann Ragnar spilar fyrir Keflavík, en hann var leikmaður þeirra á árinum 1999-2002 og lék þá alls 70 leiki og skoraði fimm mörk. Þar af voru 43 leikir í efstu deild.
Jóhann er örfættur og getur spilað á miðjunni, á kantinum og sem bakvörður en hann hefur aðallega leikið sem bakvörður með Keflvíkingum í Fótbolta.net mótinu að undanförnu.
Jóhann er örfættur og getur spilað á miðjunni, á kantinum og sem bakvörður en hann hefur aðallega leikið sem bakvörður með Keflvíkingum í Fótbolta.net mótinu að undanförnu.
Heimild: Keflavík
