Fotbolti.net
30.01.12 - 12:00
Magnús Már Einarsson
Ítalska deildin

Luca Toni til Al Nasr (Staðfest)

Luca Toni til Al Nasr (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Luca Toni, framherji Juventus, hefur gengið til liðs við Al Nasr í Sameinuðu arabísku Furstadæmunum.
Þessi 34 ára gamli leikmaður kom til Juventus frá Genoa fyrir ári síðan en hann hefur ekki komið við sögu á þessu tímabili.

Toni átti hálft ár eftir af samningi sínum við Juventus en hann ætlar nú að leika með Al Nasr þar sem Walter Zenga fyrrum landsliðsmarkvörður ítalska landsliðsins er við stjórnvölinn.

Toni sló nokkuð seint í gegn á ferlinum en hann raðaði síðan inn mörkunum með Palermo, Fiorentina og FC Bayern frá 2003-2010.

Að lokum er ekki úr vegi að hlusta á stuðningsmannalag Luca Toni en textinn og rímið í laginu er af dýrari gerðinni.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.