Fotbolti.net
30.01.12 - 15:00
Elvar Geir Magnússon

Orri Sigurður Ómarsson í AGF (Staðfest)

Orri er hér í treyju númer fjögur.

Orri er hér í treyju númer fjögur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Orri Sigurður Ómarsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við danska félagið AGF. Á föstudag náði AGF samkomulagi við HK og var gengið frá samningum um helgina.

Orri getur bæði spilað í vörn og á miðju en hann lék 20 leiki með Kópavogsliðinu í 1. deildinni í sumar þegar liðið féll úr deildinni.
Fleiri félög sýndu honum áhuga, bæði lið í Peppsi-deildinni og félög erlendis.

Orri er sextán ára gamall og var að klára sitt fyrsta tímabil sem meistaraflokksleikmaður þrátt fyrir að hafa verið enn gjaldgengur í 3. flokk. Hann mun fara beint inn í U19-liðið hjá AGF.

Aron Jóhannsson leikur með aðalliði AGF en auk hans eru þrír aðrir íslenskir leikmenn á mála hjá félaginu. Oliver Sigurjónsson sem kom til félagsins frá Breiðabliki og þeir Þórður Jón Jóhannesson og Arnar Aðalgeirsson úr Haukum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.