Fotbolti.net
30.01.12 - 20:45
Elvar Geir Magnússon

Samba Diakite til QPR (Staðfest)

Samba Diakite til QPR (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Varnarsinnaði miðjumaðurinn Samba Diakite er genginn til liðs við QPR frá franska félaginu Nancy. Þessi 23 ára leikmaður kemur á lánssamningi en QPR hefur forkaupsrétt á honum eftir tímabilið.

Diakite er landsliðsmaður Malí sem vakið hefur athygli fyrir frammistöðu sína í franska boltanum.
„Topplið í Frakklandi vildu fá hann og ég er því mjög ánægður með að okkur tókst að landa honum. Hann er á flottum aldri, er með styrk og kraft, getur borið boltann upp og skorar mörk af og til,\" segir Mark Hughes, knattspyrnustjóri QPR.

Hann gefur okkur meiri styrk á miðjuna og það er öflugt að hafa fengið hann.

Diakite er ekki sleipur á svellinu þegar kemur að enskri tungu en hann segir að það sé draumur að rætast að ganga til liðs við enskt úrvalsdeildarlið.

Hann er þriðju leikmaðurinn sem Mark Hughes fær síðan hann tók við á Loftus Road en áður hafði Hughes krækt í bakverðina Taye Taiwo frá AC Milan og Nedum Onuoha frá Manchester City.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.