Fotbolti.net
30.01.12 - 22:30
Elvar Geir Magnússon

Billy Sharp til Southampton (Staðfest)

Fullt af félagaskiptum í Championship-deildinni

Billy Sharp er orðinn leikmaður Southampton.

Billy Sharp er orðinn leikmaður Southampton.

Canon

Mynd: Getty Images

Sóknarmaðurinn Billy Sharp hefur fært sig úr botnbaráttu Championship-deildarinnar yfir í toppbaráttuna. Þessi 25 ára leikmaður gekk í dag í raðir Southampton frá Doncaster.

Sharp hefur skorað 10 mörk í 20 leikjum á tímabilinu en hann kom til Doncaster frá Sheffield United sumarið 2010.
„Þetta er stórt félag með mikinn metnað og það er stærsta ástæða þess að ég flutti mig um set. Mér finnst þetta rétt skref,\" sagði Sharp.

Fleiri hræringar hafa verið í Championship-deildinni síðustu daga. Ipswich, sem er sæti fyrir ofan fallsæti, tryggði sér þjónustu miðjumannsins Ryan Stevenson frá Hearts.

Tvítugur sænskur vængmaður, Alex Kacaniklic, var lánaður frá Fulham til Watford. Hann var áður í unglingaliði Liverpool.

Alsírski miðjumaðurinn Adlene Guedioura hefur verið lánaður frá Wolves til Nottingham Forest til loka leiktíðar. Guedioura hefur byrjað aðeins tvo leiki í úrvalsdeildinni í vetur en hann mun vafalítið styrkja Forest sem er í fallsæti sem stendur.

Wolves hefur einnig lánað sóknarmanninn Sam Vokes. Þessi 22 ára landsliðsmaður frá Wales er kominn til Brighton & Hove Albion sem er fjórum stigum frá umspilssæti í Championship.

Leicester City hefur keypt varnarmanninn Wes Morgan á eina milljón punda frá Nottingham Forest. Samningur Morgan við Forest var að renna út næsta sumar.

Elliot Grandin hefur yfirgefið Blackpool. Þessi 24 ára miðjumaður hefur verið lánaður til Nice en hann bað um að fá að fara aftur til heimalandsins af persónulegum ástæðum.

Þá hefur Derby County fengið miðjumanninn Tom Carroll lánaðan frá Tottenham. Þessi nítján ára strákur hefur spilað fyrir Tottenham í bikarkeppnunum og Evrópudeildinni á þessu tímabili.
Sam Vokes var lánaður frá Wolves.

Sam Vokes var lánaður frá Wolves.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.