30.03.06 - 11:20
Hafliði Breiðfjörð
Elmar Dan Sigþórsson í Fjarðabyggð (Staðfest)

Elmar Dan.

Mynd: www.ka-sport.is

Elmar Dan.

Mynd: www.ka-sport.is
Knattspyrnufélag Fjarðabyggðar, KFF, hefur fengið Elmar Dan Sigþórsson að láni frá Víkingum út tímabilið en Elmar hefur verið að ná sér eftir krossbandameiðsl og ekkert leikið með Víkingum síðan um mitt sumar í fyrra.
Elmar Dan er framherji sem spilaði níu leiki með Víkingum í fyrstu deildinni í fyrra og skoraði í þeim fjögur mörk áður en hann sleit krossbönd. Hann hafði áður leikið með KA árin 2001-2004 og spilaði með þeim 51 leik, þar af voru 44 í efstu deild.
Hjá KFF hittir Elmar Dan fyrir Þorvald Örlygsson sem er nýtekinn við þjálfun liðsins en hann spilaði einnig undir honum hjá KA. KFF hefur verið að styrkja sig mikið síðan Þorvaldur tók við en auk Elmars hafa þeir Jóhann Ingi Jóhannsson, Andri Hjörvar Albertsson, Haukur Ingvar Sigurbergsson og Ingimar Guðmundsson gengið til liðs við þá.

Heimild: Vefsíða KFF