Fotbolti.net
30.03.06 - 14:20
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Ian Jeffs til Örebro (Staðfest)

Ian Jeffs í leik með ÍBV síðasta sumar

Ian Jeffs í leik með ÍBV síðasta sumar

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson

Miðvallarleikmaðurinn Ian Jeffs gekk í dag til liðs við Örebro frá ÍBV en þetta kom frá á heimsíðu sænska liðsins í dag. Ian er 24. ára en hann skrifaði í desember síðastliðnum undir nýjan samning við ÍBV.
Ekki er gefið upp hvað Örebro þurfa að borga fyrir Jeffs. Ian var með samning við ÍBV til loka sumarsins en Örebro vildu fá leikmanninn strax og hafa því líklega hækkað boðið sitt frá því fyrr í mánuðinum en stjórn ÍBV neitaði því boði.

Jeffs gekk til liðs við ÍBV í maí 2003 frá enska liðinu Crewe Alexandra og hefur verið lykilmaður í liðinu undanfarin þrjú ár. Síðasta sumar spilaði hann sautján leiki fyrir liðið í Landsbankadeildinni og skoraði tvö mörk þegar ÍBV bjargaði sér frá falli í síðustu umferð mótsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.