30.03.07 - 19:04
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Hannes til Viking frá Stafangri (Staðfest)

Hannes er farinn til Noregs á ný

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Hannes er farinn til Noregs á ný

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Íslenski landsliðsmaðurinn Hannes Þ. Sigurðsson hefur gengið til liðs við norska félagsins Viking frá Stafangri frá danska félaginu Brondby.
Félagsskiptin hafa tekið sinn tíma en Hannes þurfti sérstakt leyfi frá FIFA til þess að færa sig yfir en Viking er þriðja félagið sem hann muna spila fyrir á einu ári.
Samkvæmt reglugerðum FIFA, er leikmanni einungis heimilt að spila með tveimur félögum frá 1. júlí til 30. júní hvert ár. Þar sem Hannes hefur þegar verið á mála hjá tveimur félögum nú þegar á þessari leiktíð, Stoke City og Bröndby, var ljóst að því þyrfti að leita til leiðsagnar FIFA í þessu máli.
Hannes, sem hefur skorað eitt mark í níu leikjum með íslenska landsliðinu, lék með Víking frá 2002-2005 áður en að hann gekk til liðs við Stoke. Hann gekk síðan til liðs við Bröndby í ágúst síðastliðnum en danska félagið ákvað á dögunum að setja hann á sölulista.

Heimild: Opinber heimasíða Brondby