30.03.10 - 20:44
Þórður Már Sigfússon
Stefán Gíslason á láni til Viking FK (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson


Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Norska úrvalsdeildarliðið Viking frá Stafangri staðfesti í kvöld komu Stefáns Gíslasonar til félagsins á lánssamningi frá Bröndby.
Samningurinn gildir til 1. ágúst næstkomandi og hefur norska liðið forkaupsrétt á leikmanninum að þeim tíma liðnum.
Stefán verður löglegur með Viking þann 1. apríl og mun því væntanlega spila sinn fyrsta leik með félaginu þegar Viking tekur á móti Lilleström í Íslendingaslag á mánudaginn, annan í páskum.
Stefán verður löglegur með Viking þann 1. apríl og mun því væntanlega spila sinn fyrsta leik með félaginu þegar Viking tekur á móti Lilleström í Íslendingaslag á mánudaginn, annan í páskum.
Heimild: Heimasíða Viking
