30.04.05 - 11:56
Hafliði Breiðfjörð
Björn Orri Hermannsson til Ipswich (Staðfest)

Björn Orri Hermannsson sem leikið hefur með yngri flokkum Fylkis undanfarin ár er að gera samning við enska 1. deildarfélagið Ipswich Town. Þetta er staðfest á vefsíðu félagsins í dag en Björn Orri er að klára grunnskóla hér á landi nú í maí.
Hann er annar íslenski leikmaðurinn sem gengur til liðs við Ipswich nú í þessum mánuði en áður hafði markvörðurinn Óskar Pétursson gert tveggja ára samning við félagið.
Björn Orri er miðjumaður sem hefur leikið með U-16 og U-15 ára landsliðum Íslands og er nú í U-17 ára landsliðinu. Hann mun ganga til liðs við Ipswich liðið fyrir næstu leiktíð og leika þar með unglingaliðinu.