Fotbolti.net
30.04.10 - 11:39
Hafliði Breiðfjörð

Berglind Bjarnadóttir úr Val í KR (Staðfest)

Berglind í leik með KR í fyrra.

Berglind í leik með KR í fyrra.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Berglind Bjarnadóttir staldraði stutt við í herbúðum Vals sem hún gekk til liðs við frá HK/Víkingi í október síðastliðnum því hún hefur nú skipt yfir í KR.
Frá þessu var greint á vef KR en hún hefur gert samning við vesturbæjarfélagið út næstu leiktíð.

Hún þekkir til hjá KR því þar lék hún fyrstu fimm leiki Íslandsmótsins á síðasta ári á láni frá HK/Víkingi. Hún lék svo með HK/Víkingi út tímabilið, samtals 9 leiki í 1. deildinni en samdi svo til tveggja ára við Val, þaðan sem hún er nú farin til KR.

Hjá KR hittir hún fyrir Ellen Bjarnadóttur systur sína sem einnig kom frá HK/Víkingi í vetur og þá hafði þriðja systirin, Rut Bjarnadóttir æft með KR í vetur.

Berglind er varnar- og miðjumaður sem hefur leikið 14 leikj með U17 og U19 ára landsliðum Íslands.

Heimild: Vefur KR

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.