Fotbolti.net
30.04.11 - 15:26
Magnús Már Einarsson

Allan Lowing og Mark Redshaw í Fram (Staðfest)

Allan Lowing og Mark Redshaw.

Allan Lowing og Mark Redshaw.

Canon

Mynd: Getty Images

Framarar hafa gert samning við Mark Redshaw og Allan Lowing út þetta tímabil en leikmennirnir hafa verið á reynslu hjá félaginu að undanförnu.
,,Þeir eru kærkomin bót í þéttan og öflugan leikmannahóp FRAM í þeirri leikjatörn sem er framundan. Knattspyrnufélagið FRAM býður þá félaga velkomna til félagsins,\" segir á heimasíðu Fram.

Mark Redshaw er 26 ára sóknarmaður frá Englandi. Hann kemur uppúr unglingastarfi Manchester United.

Undanfarin tvö ár hefur hann verið á mála hjá gríska liðinu Ethnikos Pieraus, en hann var á láni hjá spænska liðinu Real Murica II á síðustu leiktíð.

Allan Lowing er 22 ára varnarmaður frá Skotlandi. Hann kemur úr unglingastarfi Glasgow Rangers. Hann á að baki 2 leiki með aðalliði Rangers og nokkra leiki með yngri landsliðum Skotlands. Hann spilaði í fyrra með East Fife í skosku 2. deildinni.

Redshaw er kominn með leikheimild fyrir leik Fram og ÍBV í fyrstu umferð Pepsi-deildarinnar á mánudag en Lowing á ennþá eftir að fá félagaskipti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.