Liverpool ætlar að fá þrjá - Chelsea vill Rogers - Ancelotti að taka við Brasilíu
   mið 30. apríl 2025 13:12
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Benjamin Stokke í Aftureldingu (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Afturelding
Norski framherjinn Benjamin Stokke er genginn í raðir Aftureldingar, hefur skrifað undir samning sem gildir út tímabilið.

Afturelding náði að ganga frá öllum pappírum fyrir lok gluggans í gærkvöldi og getur Stokke spilað með liðinu í næsta deildarleik sem verður gegn Stjörnunni á heimavelli á mánudag.

Stokke er 34 ára og kemur frá uppeldisfélagi sínu, Eik, sem er í norsku C-deildinni. Hann lék með Breiðabliki í fyrra og varð Íslandsmeistari með liðinu. Tímabilið þar á undan var hann markakóngur norsku B-deildarinnar sem leikmaður Kristiansund.

Aturelding er með fjögur stig eftir fyrstu fjórar umferðirnar í Bestu deildinni.

Tilkynning Aftureldingar
Benjamin Stokke í Aftureldingu

Norski framherjinn Benjamin Stokke hefur gengið til liðs við Aftureldingu en hann gerir samning út tímabilið í Bestu deildinni. Hinn 34 ára gamli Benjamin kemur til Aftureldingar frá uppeldisfélagi sínu Eik Tönsberg í Noregi. Afturelding vill sérstaklega þakka Eik fyrir góð samskipti í kringum félagaskiptin.

Benjamin þekkir til á Íslandi en á síðasta tímabili skoraði hann fjögur mörk í átta byrjunarliðsleikjum með Breiðabliki í Bestu deildinni og hjálpaði liðinu að verða Íslandsmeistari. Ári áður, árið 2023, var Benjamin markahæstur í norsku B-deildinni þegar hann skoraði sextán mörk með Kristiansund. Samtals hefur Benjamin skorað 73 mörk í 261 leik í efstu og næstefstu deild í Noregi auk þess sem hann skoraði fimm mörk í dönsku úrvalsdeildinni með Randers á sínum tíma.

„Kæru stuðningsmenn Aftureldingar. Ég er ánægður með að vera orðinn hluti af félaginu. Ég hlakka til að kynnast ykkur og taka þátt í þessu spennandi ferðalagi. Sjáumst fljótlega!” sagði Benjamin eftir undirskrift.

Afturelding býður Benjamin hjartanlega velkominn í Mosfellsbæinn!
Athugasemdir