Bruno áfram á Old Trafford - Leao orðaður við Man Utd - Milan til í að skoða skipti
banner
   fim 30. apríl 2026 22:40
Ívan Guðjón Baldursson
Kolviður í Sandgerði (Staðfest)
Mynd: Reynir Sandgerði
Kolviður Gísli Helgason er búinn að skipta um félag og mun leika með Reyni Sandgerði í sumar eftir að hafa verið hjá Breiðabliki og Augnabliki allan ferilinn hingað til.

Kolviður Gísli er framherji fæddur 2006 sem hefur vakið athygli á undirbúningstímabilinu með Augnablik. Hann var iðinn við markaskorun með yngri flokkum Blika og setti svo fjögur mörk í fimm leikjum með Augnabliki í Lengjubikarnum í vetur, auk þess að skora eitt mark í tveimur leikjum í Mjólkurbikarnum.

Kolviður gerir tveggja ára samning við Reyni sem leikur í þriðju deildinni ásamt Augnabliki. Sjö stig skildu liðin að í efri hluta deildarinnar í fyrra, þar sem Augnablik var aðeins þremur stigum frá því að tryggja sér sæti í 2. deildinni.


Slapp
banner
banner
banner