Afturelding hefur verið að styrkja leikmannahópinn sinn fyrir komandi keppnistímabil og eru Mosfellingar búnir að næla sér í litháíska landsliðskonu.
Afturelding féll úr Lengjudeildinni í fyrra og eru stjórnendur að vinna hörðum höndum að því að bæta leikmannahópinn. Monika Piesliakaite er búin að gera tveggja ára samning við Aftureldingu en hún er varnarmaður sem hefur leikið með ÍR síðastliðin tvö ár.
Hún hefur verið að æfa með Aftureldingu í vetur og hefur staðið sig vel í hinum ýmsu æfingamótum undirbúningstímabilsins. Monika er fædd 1995 og er með 11 landsleiki að baki.
Afturelding, sem er í 2. deild, hefur þá tilkynnt að Ísabella Eiríksdóttir Hjaltested sé búin að skrifa undir samning út tímabilið 2027. Hún er fædd árið 2007 og spilar sem framliggjandi miðjumaður. Hún á að baki þrjá leiki með U17 og kom til Aftureldingar frá ÍR í fyrra.



