Grindavík/Njarðvík, sem eru nýliðar í Bestu deild kvenna, náðu að krækja í efnilegan leikmann áður en félagaskiptaglugginn lokaði í gærkvöldi.
Hildur Katrín Snorradóttir er komin á láni frá FH út komandi keppnistímabil.
Hildur Katrín Snorradóttir er komin á láni frá FH út komandi keppnistímabil.
Hildur Katrín er fædd 2008 og hefur leikið með ÍH, venslafélagi FH, síðustu ár ásamt því að spila nokkra leiki með FH í Bestu deildinni.
Sumarið 2024 var hún frábær í liði ÍH í 2. deild þar sem hún skoraði 13 mörk í tólf leikjum.
Grindavík/Njarðvík styrkti sig vel í glugganum en liðið leikur sinn annan leik í Bestu deildinni í kvöld gegn Þór/KA.



