Bruno áfram á Old Trafford - Leao orðaður við Man Utd - Milan til í að skoða skipti
   fim 30. apríl 2026 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Selfyssingar bregðast við meiðslum og fá Benjamín (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Selfoss hefur samið við Benjamín Jónsson (2003) um að leika með liðinu í sumar.

Markvörður Selfyssinga, Arnór Elí Kjartansson (2005), meiddist á dögunum og verður frá keppni í einhvern tíma.

Benjamín lék með yngri flokkum Vals áður en hann fór yfir í Fram. Þar lék hann einn leik í Bestu deildinni sumarið 2023. Þaðan fór hann til Þróttar í Vogum áður en hann samdi við Þrótt Reykjavík fyrir síðasta tímabil.

Selfoss féll úr Lengjudeildinni í fyrra og ætlar sér upp úr 2. deild í sumar. Fyrsti leikur Selfyssinga í deildinni verður á JÁVERK-vellinum klukkan 14:00 á laugardag.


Slapp
banner
banner