Bruno áfram á Old Trafford - Leao orðaður við Man Utd - Milan til í að skoða skipti
   fim 30. apríl 2026 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Spænskur sóknarmaður í Völsung (Staðfest
Lengjudeildin
Mynd: Völsungur
Völsungur hefur staðfest komu Fernando Jimenez til liðsins en hann kemur úr neðri deildunum á Spáni.

Hann er 22 ára gamall sóknarmaður og hefur fengið leikheimild. Völsungur gerði jafntefli gegn Leikni í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar, Jimenez er kominn með leikheimild og er von á honum til landsins fljótlega, spurning hvort hann verði klár í slaginn á morgun gegn Aftureldingu í Mosó.

Fréttatilkynning Völsungs

Fernandooooo!!!!!!
Sá sem ABBA sungu um á sínum tíma er nú loks kominn til Húsavíkur. Fernando Jimenez er spænskur 22 ára sóknarmaður sem kemur til okkar úr neðri deildunum á Spáni. Fernando er nú þegar kominn með leikheimild með Völsungi og er von á honum til landsins sem fyrst. Velkominn í Völsung!
Slapp
banner
banner