Fotbolti.net
30.05.07 - 10:14
Magnús Már Einarsson
Ítalska deildin

Luca Toni fer til Bayern Munchen í sumar (Staðfest)

Luca Toni fer til Bayern Munchen í sumar (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Karl-Heinz Rummenigge framkvæmdastjóri Bayern Munchen greindi frá því í dag að félagið muni fá framherjann Luca Toni frá Fiorentina á átta milljónir evra í sumar.
Bayern Munchen endaði í fjórða sæti í Bundesligunni á nýliðnu tímabili og missti af Meistaradeildarsæti. Liðið ætlar að eyða fjárhæðum í leikmenn í sumar og er ljóst að Toni mun koma.

Toni sem er þrítugur hefur skorað 47 mörk fyrir Fiorentina á tveimur leiktíðum síðan hann kom til félagsins frá Palermo.

,,Ég hef notið tímans í Florens og ég er mjög þakklátur stuðningsmönnunum fyrir þann frábæra tíma sem ég hef átt hér," sagði Toni.

Toni er að jafna sig eftir aðgerð á fæti og mun hann missa af leikjum með Ítölum í undankeppni EM, gegn Færeyjum og Litháen næstkomandi laugar og miðvikudag.

Heimild: Heimasíða UEFA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.