30.05.07 - 12:58
Magnús Már Einarsson
Hermann Geir í Víking Ólafsvík á láni (Staðfest)
Fyrrum slóvenskur U-21 árs landsliðsmaður einnig í Víking

Hermann Geir Þórsson í leik gegn FH í Lengjubikarnum í vor.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Víkingur Ólafsvík úr fyrstu deild karla hefur fengið Hermann Geir Þórsson að láni frá HK í einn mánuð og liðið hefur einnig fengið Slóvena að nafni Aljaz Horvat.
Hermann Geir sem er á 28.aldursári lék með Víkingum áður en að hann fór til HK haustið 2005. Hann var fastamaður í vinstri bakverði hjá HK þegar að liðið komst upp úr fyrstu deildinni í fyrra en hann skoraði tvö mörk í átján leikjum.
Hermann Geir hefur átt við meiðsli að stríða en hann hefur komið við sögu í einum leik með HK í Landsbankadeildinni í sumar.
Slóveninn Aljaz Horvat er 22 ára gamall en hann var á sínum tíma í U-21 árs landsliði Slóvena. Hann getur leikið sem hægri bakvörður, miðvörður og varnarsinnaður miðvörður.
Alajz Horvat er þegar kominn með leikheimild og Hermann Geir ætti að fá leikheimild í dag sem þýðir að þeir geta báðir leikið með Víkingi gegn Grindavík í fyrstu deildinni annað kvöld.