30.05.08 - 12:30
Hafliði Breiðfjörð
Mikael Forssell til Hannover (Staðfest)

Forssell í leik með Birmingham.

Mynd: Getty Images

Forssell í leik með Birmingham.

Mynd: Getty Images
Finnski framherjinn Mikael Forssell gekk í dag í raðir þýska Bundelisguliðsins Hannover en hann kemur til liðsins frá Birmingham í Englandi án greiðslu.
Forssell sem er 27 ára gamall gerði í dag samning við Hannover sem gildir til sumarsins 2011. Fyrir hjá Hannover er íslenski landsliðsframherjinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson sem reyndar er á láni hjá Vålerenga í Noregi og vill losna frá báðum félögum og leita annað.
Christian Hochstatter íþróttastjóri Hannover þekkir vel til Forssell því hann vann með honum er hann lék með Borussia Monchengladbach fyrir fimm árum síðan.
,,Við erum ánægðir með að við höfum náð að telja Mikael á að ganga til liðs við Hannover," sagði Hochstatter við vefsíðu Hannover.
Forssell var í leikmannahópi Birmingham sem féll úr ensku úrvalsdeildinni í ár. Hann bætti við: ,,Ég hlakka til að spila fyrir Hannover og í Bundeglisunni."

Heimild: Sporting Life