30.05.11 - 12:24
Smári Jökull Jónsson
Ragnar Sigurðsson til FCK (Staðfest)
Gerir fjögurra ára samning

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sænska liðið IFK Gautaborg staðfestir á heimasíðu sinni að Ragnar Sigurðsson muni ganga til liðs við dönsku meistarana í FC Kaupmannahöfn nú í sumar. FCK hefur æfingar eftir sumarfrí þann 20.júní en liðin gerðu samning sín á milli um að Ragnar myndi leika sinn síðasta leik fyrir IFK Gautaborg þann 22.júní gegn Elfsborg og færa sig svo um set til Kaupmannahafnar.
Ragnar gekk til liðs við IFK Gautaborg haustið 2006 og er tímabilið sem nú er í gangi því hans fimmta hjá sænska liðinu. Hann varð meistari með Gautaborg árið 2007 auk þess sem félagið lenti í öðru sæti í deild og bikar árið 2009.
\"Ég hef lengi verið tilbúinn að taka næsta skref á ferlinum og nú er kominn tími til,\" segir Ragnar í viðtali á heimasíðu Gautaborgar.
\"Mér líst mjög vel á þetta en á sama tíma er þetta svolítið skrýtið. Ef ég hefði einungis verið í 1-2 ár hjá Gautaborg hefði þetta verið aðeins öðruvísi. Nú hef ég verið hjá IFK Gautaborg svo lengi að ég á eftir að sakna þess að vera hérna. Reyndar eru margir vinir mínir frá Íslandi sem eru að vinna eða læra í Kaupmannahöfn. Sölvi Ottesen leikmaður FCK er þar að auki einn af mínum bestu vinum,\" segir Ragnar ennfremur í viðtalinu.
Roland Nilsson tekur við sem knattspyrnustjóri FCK 1.júní en liðið varð meistari í gær undir stjórn Ståle Solbakken sem í sumar tekur við FC Köln í þýsku deildinni. Ragnar er fyrsti leikmaðurinn sem Nilsson fær til liðs við sig.
Ragnar gerir fjögurra ára samning við FCK sem komst í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í ár en féll þar úr leik gegn Chelsea.

Heimild: Heimasíða IFK Gautaborg