Fotbolti.net
30.05.24 - 13:41
Elvar Geir Magnússon

Thorup tekinn við Norwich (Staðfest)

Thorup tekinn við Norwich (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Daninn Johannes Hoff Thorup er hættur sem stjóri Nordsjælland og búinn að taka við stjórnartaumunum hjá Norwich í ensku Championship-deildinni. Hann skrifaði undir þriggja ára samning.

Thorup er 35 ára og tekur við af David Wagner sem var rekinn eftir að Norwich tapaði gegn Leeds í umspili Championship-deildarinnar.

„Ég er spenntur og vona að stuðningsmenn séu það líka. Ég er með mínar hugmyndir en mun líka hlusta á það góða sem hefur verið gert áður. Ég legg áherslu á samvinnu," segir Thorup
Norwich endaði í sjötta sæti deildarinnar undir stjórn Wagner.

Thorup var við stjórnvölinn hjá Nordsjælland frá janúar 2023 þegar hann fékk stöðuhækkun úr starfi aðstoðarþjálfara.

Hann stýrði liðinu í annað sæti dönsku deildarinnar á síðasta tímabili. Á þessu tímabili kom hann liðinu í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar og endaði liðið í fjórða sæti í deildinni.

Glen Riddersholm, fyrrum stjóri Norrköping og Midtjylland, verður aðstoðarmaður Thorup hjá Norwich.

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Birmingham15+1429
2Middlesbrough15+1129
3Stoke City15+629
4Wolves15+828
5West Brom15+828
6Swansea15+426
7Southampton15+1424
8QPR15+624
9West Ham15+1423
10Sheffield Utd15+222
11Portsmouth15+222
12Norwich15+821
13Blackburn15-121
14Cardiff City15018
15Wrexham15-218
16Millwall15-418
17Bristol City15-818
18Bolton15-917
19Charlton Athletic15-1017
20Watford15-1015
21Lincoln City15-1115
22Burnley15-910
23Derby County15-1610
24Preston NE15-178
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.