Hinn 34 ára gamli Kevin De Bruyne gekk til liðs við Napoli eftir að samningur hans við Man City rann út síðasta sumar. Hann kom við sögu í 21 leik og kom að sjö mörkum í öllum keppnum en meiðsli settu strik í reikninginn.
Antonio Conte hætti eftir tímabilið þar sem Napoli mistókst að verja ítalska titilinn. De Bruyne er feginn að hann sé farinn.
Antonio Conte hætti eftir tímabilið þar sem Napoli mistókst að verja ítalska titilinn. De Bruyne er feginn að hann sé farinn.
„Ég er ánægður að Conte sé farinn. Við spiluðum mjög varnarsinnaðan bolta. Það er ekki frábært maður skorar bara eitt mark í 5-4-1 kerfi. Hann er með allt aðra sýn á fótbolta en ég. Ég spilaði aldrei mína uppáhalds stöðu," sagði De Bruyne.
Samningur De Bruyne rennur út í sumar en það er ákvæði um að framlengja hann um ár til viðbótar. Hann er tilbúinn að taka spjallið ef honum líst vel á hugmyndir næsta stjóra.

