Andoni Iraola er að taka við Liverpool. Þetta segir Fabrizio Romano á X.
Veðbankar á Englandi og fjölmiðlamenn settu hann strax efstan á óskalista Liverpool þegar félagið tilkynnti um brottrekstur Slot.
Iraola hefur um nokkurt skeið verið spenntur fyrir því að taka við Liverpool en fór í viðræður við Bayer Leverkusen þar sem ekki leit út fyrir að Slot yrði látinn fara.
Slot fékk sjálfur tíðindin í morgun um að hann yrði ekki áfram með Liverpool og í kjölfarið hóf félagið viðræður við Iraola, sem hætti með Bournemouth eftir tímabilið.
Romano segir að Liverpool hafi tekið ákvörðun um að ráða Iraola og að hann verði kynntur til leiks hjá félaginu á næstu dögum.
Iraola náði eftirtektarverðum árangri með Bournemouth á þremur árum sínum hjá félaginu. Hann kom liðinu í Evrópudeildina fyrir næstu leiktíð og liðið fór taplaust í gegnum síðustu átján deildarleiki tímabilsins.
???????? Andoni Iraola, set to become the next Liverpool manager as revealed earlier today!
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) May 30, 2026
The negotiations will move forward quickly to get it done with formal steps but #LFC decision made…
…Iraola will be the next manager. ???????? pic.twitter.com/r4K1xRnxDP

