Arne Slot gæti ekki þurft að bíða lengi eftir næsta starfi eftir að hafa verið rekinn frá Liverpool í morgun.
Slot var rekinn eftir tvö ár í starfi en liðið vann úrvalsdeildina undir hans stjórn í fyrra. Liðið skreið hins vegar inn í Meistaradeildina á nýliðnu tímabili og var 25 stigum á eftir Englandsmeisturum Arsenal.
AC Milan hefur áhuga á að ráða Slot samkvæmt heimildum Daily Mail.
Max Allegri var rekinn frá Milan eftir að liðinu mistókst að tryggja sér sæti í Meistaradeildinni. Andoni Iraola er einnig orðaður við Milan er það er talið líklegast að hann endi sem stjóri Liverpool.

