30.06.06 - 11:16
Guðmundur Dagur Ólafsson
Liverpool selur Cheyrou (Staðfest)

Cheyrou er hér í leik með Liverpool fyrir tveimur árum

Mynd: Getty Images

Cheyrou er hér í leik með Liverpool fyrir tveimur árum

Mynd: Getty Images
Bruno Cheyrou, miðjumaður Liverpool, hefur ákveðið að ganga til liðs við franska félagið Rennes. Ekki hefur verið gefið upp hversu hátt kaupverðið er né hve langan samning Cheyrou gerir við franska félagið.
Hann hefur verið í láni hjá bæði Marseille og Bordeaux síðustu tvö tímabil en hann er 28 ára gamall. Hann var keyptur til félagsins frá Lille af Gerard Houllier fyrir 4,5 milljónir punda en fann sig aldrei þar. Hann spilaði 48 leiki fyrir Liverpool og skoraði í þeim 5 mörk.
Þó nokkur félög höfðu sýnt Frakkanum áhuga en Rennes sóttu harðast að honum að koma til þeirra. Hann verður kynntur opinberlega sem leikmaður þierra á blaðamannafundi seinna í dag.
Þó nokkur félög höfðu sýnt Frakkanum áhuga en Rennes sóttu harðast að honum að koma til þeirra. Hann verður kynntur opinberlega sem leikmaður þierra á blaðamannafundi seinna í dag.
