Fotbolti.net
30.06.06 - 18:19
Guðmundur Dagur Ólafsson

Zokora til Tottenham (Staðfest)

Zokora í leik með Fílabeinsströndinni gegn Argentínu á HM

Zokora í leik með Fílabeinsströndinni gegn Argentínu á HM

Canon

Mynd: Getty Images

Tottenham hafa gengið frá kaupunum á Didier Zokora, landsliðsmanni Fílabeinsstrandarinnar, frá franska félaginu St. Etienne en ekki hefur verið uppgefið kaupverð en vitað er að franska félagið vildi fá um 8 milljónir punda fyrir hann.
Martin Jol, knattspyrnustjóri Tottenham, var ánægður með að fá hinn 25 ára Zokora.

"Fólk sagði fyrir keppnina að Didier gæti orðið einn besti miðjumaður HM og hann stóð fyllilega undir því riðlakeppninni," sagði Jol við opinbera heimasíðu félagsins. "Það voru mörg lið á eftir honum og því ánægjulegt að hann valdi okkur."

Zokora var hæstánægður með að vera kominn til Englands.

"Ég er stoltur að vera kominn hingað því þetta er frábært félag," sagði Zokora. "Það eru margir góðir leikmenn hér og kjarninn í liðinu er mjög ungur. Allt þetta varð til þess að ég valdi Tottenham," bætti hann við.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.