Fotbolti.net
30.06.07 - 13:35
Magnús Már Einarsson

Pálmi Haralds, Jón Þór og Stefán í Kára (Staðfest)

Pálmi Haraldsson.

Pálmi Haraldsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Kári úr þriðju deild hefur fengið góðan liðsstyrk undanfarna daga en félagið hefur fengið þrjá nýja leikmenn. Þar ber hæst koma Pálma Haraldssonar fyrrum leikmanns ÍA.
Pálmi lagði skóna á hilluna eftir síðasta tímabil en hann er leikjahæsti leikmaður ÍA í öllum keppnum. Hann lék hátt í 500 leiki með ÍA á ferlinum og vann til fimm Íslandsmeistara tiltla og þriggja bikarmeistaratitla með Skagamönnum.

Auk Pálma hafa Káramenn fengið Jón Þór Hauksson og Stefán Þórðarson.

Jón Þór æfði og spilaði með ÍA á undirbúningstímabilinu en hann hefur einnig leikið með Aftureldingu og Skallagrími. Stefán hefur leikið með ÍA og einnig með Val og Víkingi í efstu deild auk þess sem að hann var á mála hjá ÍR um tíma.

Pálmi, Jón Þór og Stefán hafa allir fengið leikheimild með Kára og munu þeira leika með liðinu gegn BÍ/Bolungarvík á Akranesi klukkan 16:00 í dag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.