30.06.08 - 17:43
Brynjar Ingi Erluson
Christian Vieri til Atalanta (Staðfest)

Kominn til Atalanta.

Mynd: Getty Images

Kominn til Atalanta.

Mynd: Getty Images
Ítalski refurinn Christian Vieiri hefur ákveðið að ganga til liðs við Atalanta á ný eftir að hafa varið einu tímabili með Fiorentina.
Vieiri, sem er 34 ára gamall, hefur tvisvar áður verið hjá félaginu. Hann spilaði með þeim tímabilið 1995/96 og spilaði svo með þeim tímabilið 2006/07.
Vieri hefur skrifað undir eins árs samning við félagið, en hann hefur fengið mismunandi viðbrögð frá stuðningsmönnum félagins eftir að hafa yfirgefið Atalanta á súran hátt fyrir ári síðan.
Hann hefur spilað 49 landsleiki fyrir Ítalíu og skoraði í þeim 23 mörk. Þá spilaði hann 26 leiki fyrir Fiorentina á síðasta tímabili og skoraði sex mörk.
Hann klúðraði hins vegar mikilvægri vítaspyrnu í vítaspyrnukeppni í undanúrslitum UEFA bikarsins gegn Glasgow Rangers í vetur.

Heimild: Sky