30.06.08 - 18:50
Magnús Már Einarsson
Deco til Chelsea (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Chelsea hefur gengið frá kaupum á portúgalska miðjumanninum Deco en þetta var tilkynnt á heimasíðu enska félagsins í kvöld.
Deco kemur frá Barcelona en kaupverðið og samningslengd hefur ekki verið gefið upp. Þó er talið að Deco komi til Chelsea á um 7,9 milljónir punda og að samningur hans við félagið sé til tveggja ára.
Deco er fyrsti leikmaðurinn sem kemur til Chelsea síðan Luiz Felipe Scolari tók við liðinu en þeir þekkjast vel úr portúgalska landsliðinu.
,,Það er gott fyrir mig að vera kominn hingað og ég er fyrst og fremst mjög ánægður með að vera hér,\" sagði Deco eftir að hafa skrifað undir hjá Chelsea.
,,Ég er viss um að ég er kominn hingað á réttum tíma til að gera frábæra hluti og hjálpa Chelsea að fara á sama stað og félagið var komið á, að vera í fyrsta sæti, ekki einungis á Englandi heldur einnig í Meistaradeildinni en það hefur verið draumur félagsins lengi að vinna þá keppni.\"
,,Enska úrvalsdeildin er frábær og er bara að verða betri, þú getur séð það á úrslitaleik Meistaradeildarinnar þar sem tvö ensk lið mættust. Það er frábært að við höfum svona marga frábæra leikmenn hér hjá Chelsea og það er gott að hér er samkeppni sem er holl fyrir alla, það gerir liðið einungis betra.\"
,,Ég veit að ég þarf svolítinn tíma til að aðlagast en ég er viss um að ég mun aðlagast vel og nokkuð fljótt til að gera mitt besta fyrir félagið,\" sagði Deco.

Heimild: Heimasíða Chelsea