30.06.09 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Diego Milito til Inter (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Inter gekk í gær frá kaupunum á argentínska framherjanum Diego Milito en hann kemur frá Genoa fyrir óuppgefna upphæð.
Þessi þrítugi leikmaður skoraði 24 mörk á síðustu leiktíð en hann hefur núna skrifað undir fjögurra ára samning við Inter.
Ítalíumeistarar Inter náðu fyrr í sumar samkomulagi um að fá Diego Milito og liðsfélaga hans Thiago Motta.
Motta, sem lék áður með Barcelona og Atletico Madrid, verður væntanlega kynntur sem leikmaður Inter á næstu dögum.
Genoa mun hins vegar fá Robert Acquafresca, Hernan Crespo og Sergio Floccari frá Inter í staðinn.

Heimild: Reuters