Fotbolti.net
30.06.09 - 09:56
Magnús Már Einarsson

Wolves kaupir Kevin Doyle fyrir metfé (Staðfest)

Wolves kaupir Kevin Doyle fyrir metfé (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Nýliðar Wolves í ensku úrvalsdeildinni hafa keypt írska framherjann Kevin Doyle frá Reading fyrir metfé upp á um það bil 6,5 milljónir punda.
Aston Villa, Everton, Sunderland, Bolton og Fulham höfðu einnig sýnt Doyle áhuga en Wolves náði að vinna kapphlaupið um leikmanninn.

Þessi 25 ára gamli Íri skoraði 18 mörk á síðustu leiktíð en hann hefur núna gert fjögurra ára samning við Wolves.

,,Wolves var fyrsta félagið sem sýndi áhuga og náði samkomulagi við Reading þannig að þetta var fyrsta félagið sem ég ræddi við,\" sagði Doyle.

Mick McCarthy, stjóri Wolves, hefur unnið að því hörðum höndum í sumar að styrkja leikmannahópinn fyrir komandi átök í ensku úrvalsdeildinni.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.