Fotbolti.net
30.06.09 - 19:03
Magnús Már Einarsson

Tyrone Mears og Steven Fletcher til Burnley (Staðfest)

Steven Fletcher.

Steven Fletcher.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Nýliðar Burnley í ensku úrvalsdeildinni hafa fest kaup á Steven Fletcher og Tyrone Mears.
Fletcher kemur til félagins frá Hibernian á metfé eða þrjár milljónir punda.

Fletcher hefur vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína með Hibernian þar sem hann hefur skorað 52 mörk í 190 leikjum en hann hefur meðal annars verið orðaður við Real Madrid og Celtic.

Þessi 22 ára gamli leikmaður á einnig fjóra landsleiki að baki með Skotum en hann skoraði sigurmarkið gegn Íslendingum í apríl síðastliðnum.

Mears er 26 ára gamall varnarmaður sem kemur til Burnley frá Derby á 500 þúsund pund.

Mears var í láni hjá Marseille á síðustu leiktíð en hann hefur núna skrifað undir þriggja ára samning við Burnley.

Heimild: BBC | BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.