Fotbolti.net
30.06.09 - 18:11
Hörður Snævar Jónsson

Antonio Valencia til Manchester United (Staðfest)

Antonio Valencia til Manchester United (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Manchester United hefur gengið frá kaupunum á Antonio Valencia frá Wigan og hefur hann skrifað undir fjögurra ára samning en kaupverðið er ekki gefið upp.
Þessi 23 ára gamli kantmaður frá Ekvador hefur lengi verið orðaður við United og mun líklega fá það hlutverk að leysa Cristiano Ronaldo af hólmi sem er á leið til Real Madrid.

,,Antonio er leikmaður sem við höfum fylgst með um hríð á þeim tveimur árum sem hann hefur spilað með Wigan. Ég er viss um að með hraða hans og leikni getur hann gert vel fyrir okkur,\" sagði Sir Alex Ferguson stjóri Manchester United.

,,Að ganga í raðir Manchester United er draumur fyrir mig, ég hef notið tímans hjá Wigan en ég er svo ánægður með að fá þetta tækifæri að spila fyrir stærsta félag í heiminum.\"

,,Að spila fyrir framan 76 þúsund með leikmönnum á borð við Wayne Rooney, Rio Ferdinand og Ryan Giggs verður ótrúlegt, ég get ekki beðið eftir því að byrja,\"
sagði Valencia sjálfur.

Heimild: Heimasíða Manchester United

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.