Fotbolti.net
30.06.11 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Hector Cuper tekur við Racing Santander (Staðfest)

Hector Cuper tekur við Racing Santander (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Spænska félagið Racing Santander hefur ráðið Hector Cuper sem þjálfara.
Þessi 55 ára gamli Argentínumaður var síðast hjá Aris Salonika í Grikklandi en hann sagði upp þar í janúar.

Cuper stýrði Valencia með góðum árangri frá 1999-2001 og í kjölfarið tók hann við Inter.

Undanfarin ár hefur hann meðal annars stýrt Mallorca, Real Betis, Parma og landsliði Georgíu en hann kom með því til Íslands árið 2009.

Cuper tekur við Racing Santander af Marcelino sem hætti á dögunum eftir ósætti við Ahsan Ali Syed eiganda félagsins.

Racing endaði í tólfta sæti í La Liga á síðasta tímabili undir stjórn Marcelino en hann tók við Sevilla á dögunum.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.