Fotbolti.net
30.07.07 - 09:33
Hafliði Breiðfjörð

Liverpool lánar Peltier til Yeovil (Staðfest)

Peltier í leik með Liverpool gegn Cardiff fyrir hálfum mánuði síðan.

Peltier í leik með Liverpool gegn Cardiff fyrir hálfum mánuði síðan.

Canon

Mynd: Getty Images

Liverpool hefur lánað miðjumanninn Lee Peltier til Yeovil town og hann hefur þegar leikið sinn fyrsta leik fyrir félagið gegn Bristol City í æfingaleik á Ashton Gate á laugardag en leiknum lauk með 2-2 jafntefli.
Peltier sem er 20 ára gamall getur einnig leikið sem varnarmaður. Hann hefur ekki enn leikið sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni með Liverpool.

Hann hefur þó leikið þrjá leiki í deildabikar og einn í Meistaradeild Evrópu. Hann var á síðustu leiktíð hjá Hull City þar sem hann spilaði sjö leiki í Championship deildinni.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.