Fotbolti.net
30.07.07 - 11:12
Magnús Már Einarsson

Björn Viðar til ÍR á láni (Staðfest)

Björn Viðar í leik gegn FH fyrr í sumar.

Björn Viðar í leik gegn FH fyrr í sumar.

Canon

Mynd: FH.is

ÍR úr annarri deild hefur fengið sóknarmanninn Björn Viðar Ásbjörnsson að láni frá Víkingi út tímabilið.
Björn Viðar sem er 26 ára gamall er uppalinn hjá Fylki en hann gekk til liðs við Víking fyrir tímabilið.

Hann hefur ekki fundið sig í Víkinni, leikið sjö leiki í Landsbankadeildinni og þar af tvo í byrjunarliði en ekki náð að skora.

ÍR-ingar burstuðu Sindra 7-0 á föstudaginn og eru sem stendur í þriðja sæti í annarri deildinni. Liðið mætir Selfyssingum sem eru í öðru sæti á miðvikudaginn og þar ætti Björn Viðar að geta leikið sinn fyrsta leik með ÍR.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.